Almennt
		
					29.10.2008			
	
	
Allir þekkja hið fræga Kjarnafæði pepperoni,
enda margverðlaunað og einstakt pepperoni. Nú hefur Kjarnafæði líka sett á
markað kjötbúðing með pepperonibitum í. Pepperonibúðingurinn frá Kjarnafæði er
þrusugóður enda ekkert til sparað því Pepperonibúðingurinn inniheldur 25%
Kjarnafæði pepperoni og því bragðmikill og ljúffengur í senn.
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			Almennt
		
					24.10.2008			
	
	
 Íslenska kokkalandsliðið náði
glæsilegum árangri á Ólympíumóti matreiðslumeistara í Erfurt í Þýskaland. Íslenska landsliðið gerði
sér lítið fyrir og tók inn tvö gull, annars vegar fyrir heita matinn og eitt
fyrir kalda borðið. Þar að auki hlaut landsliðið tvö silfurverðlaun fyrir kalda
borðið.
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			Almennt
		
					08.10.2008			
	
	
Jóhannes Steinn Jóhannesson varð í gær matreiðslumaður ársins. Úrslitakeppnin fór fram í Hótel og Veitingaskólanum í Kópavogi í gær, keppendur byrjuðu klukkan 08;00 og fyrstu skiluðu klukkan 13;00 og svo á 10 mín. fresti.
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			Almennt
		
					29.09.2008			
	
	
Landslið Íslands í matreiðslu stendur í ströngu þessa dagana við æfingar fyrir Ólympíuleikana sem haldnir verða síðar á þessu ári í Þýskalandi.  Mikil vinna við útfærslu hugmynda er að baki og framundan er tímabil þar sem framleiðsla á réttunum er þaulæfð og öll vinnubrögð fínpússuð þannig að allt verði fullkomið þegar að keppninni kemur. 
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			Almennt
		
					22.09.2008			
	
	
Í upphafi skólatíðar er vert að vekja athygli á að kjötvörur frá Kjarnafæði eru mjólkurlausar, að lifrarpylsu undanskilinni. Má þar meðal annars nefna pylsur, kjötfars, kjötbúðinga, álegg og bjúgu. 
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			Almennt
		
					16.09.2008			
	
	
Anna Bryndís Stefánsdóttir skrifaði nýlega undir samning við Kjarnafæði um að hefja nám í kjötiðn. Anna bætist við fríðan hóp kjötiðnaðarnema Kjarnafæðis, sem eru nú fjórir. Anna hefur starfað hjá Kjarnafæði í nokkur ár og er öllum hnútum kunnug hjá félaginu. Meistari Önnu er Eðvald Valgarðsson. 
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			Almennt
		
					11.09.2008			
	
	
Kjarnafæði hefur hafið sölu á forsteiktum lambakótelettum í mötuneytispakkningum. Forsteiktu lambakóteletturnar eru hjúpaðar raspi og tilbúnar beint í ofninn. Forsteiktu lambakóteletturnar frá Kjarnafæði eru úr íslensku úrvals lambakjöti – engum aukaefnum er bætt við, heldur er um að ræða 100% hreint hráefni. 
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			Almennt
		
					10.09.2008			
	
	
Stjórn Sláturfélags Vopnfirðinga samþykkti á fundi sínum 25. ágúst s.l. nýja verðskrá til bænda fyrir kindakjöt haustið 2008.  Stjórn SV áskilur sér rétt til breytinga á verðskránni ef þurfa þykir svo tryggt sé að innleggjendur hjá félaginu njóti a.m.k. sambærilegra kjara og best gerast hjá öðrum sláturleyfishöfum. Hækkun milli ára er á bilinu 15,5-17,5 %.
Sem fyrr halda Landssamtök sauðfjárbænda utan um samanburð á verðskrám á vef sínum samkvæmt nýjustu upplýsingum. 
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			Almennt
		
					20.08.2008			
	
	
Kjarnafæði hefur hafið sölu á forsteiktum grísakótelettum í mötuneytispakkningum. Forsteiktu grísakóteletturnar eru hjúpaðar raspi og tilbúnar beint í ofninn. Forsteiktu grísakóteletturnar frá Kjarnafæði eru úr íslensku úrvals grísakjöti – engum aukaefnum er bætt við, heldur er um að ræða 100% hreint hráefni. 
Lesa meira
	
 	
		
		
		
			Almennt
		
					20.08.2008			
	
	
Hróður hangikjötsins frá Kjarnafæði berst víða. Hérna er skemmtileg frásögn af matarboði í Kongó:
Kjarnafæðis hangikjöt í Kongó,- það er málið!!! 
Lesa meira