Fréttir

Nýtt - Skólahakk

Kjarnafæði hefur sett á markað nýja og spennandi vöru Skólahakk, fyrir mötuneyti og stóreldhús. Skólahakk er blandað hakk, sem er einstaklega gott í pottrétti, pastasósur, sem og flesta aðra hakkrétti.
Lesa meira

Undanúrslit: Dagur 4

Hann "Nafni" úr fyrstu umferð hafði samband við Capone á Reykjavík FM 101,5 að morgni 4. keppnisdags undankeppni Íslandsmeistaramótsins í pylsuáti og lýsti yfir mikilli óánægju með að hafa verið slegin út úr úrslitakeppninni daginn áður.  Þar sem einn skráður keppandi hafði forfallast sökum veikinda fékk Nafni annan séns og mætti aftur til leiks á 4. keppnisdegi.  Drengurinn gerði sér lítið fyrir og sigraði keppnina með því að klára allar fimm Kjarnafæði pylsurnar með brauði á þrem mínútum sléttum.
Lesa meira

Nýtt - Kínaþynnur

Kjarnafæði hefur sett markað Kínaþynnur fyrir mötuneyti og stóreldhús. Kínaþynnur eru þunnskornar kjötsneiðar að austurlenskum sið, sérstaklega hentugar í austurlenska rétti, aðra pottrétti eða sem fyllingu í tortillur.
Lesa meira

Undanúrslit: Dagur 3

Öll fyrri met undankeppninnar um Íslandsmeistaratitilinn í pylsuáti fengu að lúta í lægra haldi fyrir árangri keppenda dagsins.  Þeir Jón Maríuson, Kristján Árni Knútsson og Björn Andri Benediktson kláruðu allir 5 stk af Kjarnafæði pylsum í pylsubrauðum á innan við 3 mínútum. Bestum árangri náði Jón sem kláraði skammtinn á 2 mínútum og 36 sekúntum.
Lesa meira

Undanúrslit: dagur 2

Atli Kristófer stórvinur Reykjavík FM 105,5 vann annan dag undankeppninnar í Íslandsmeistaramótinu í pylsuáti  og stútaði 4 og hálfri Kjarnafæði pylsu með brauði á 3 mínútum, sem var besti árangurinn í keppninni hingað til.
Lesa meira

'Nafni' fyrstur í úrslit

Vinningshafi fyrstu undankeppninnar í Íslandsmeistaramótinu í pylsuáti heitir Andri Yngvason, betur þekktur af hlustendum Capone sem Nafni. Nafni náði að setja ofan í sig 4 pylsur og brauð á þeim 3 mínútum sem menn fá í undankeppninni.
Lesa meira

Íslandsmótið í pysluáti 2007

Íslandsmeistaramótið í Pylsuáti fer fram á menningarnótt í miðbæ Reykajvíkur þann 18. ágúst næstkomandi.  Það eru Reykjavík FM 105,5 og Kjarnafæði sem standa að mótinu.
Lesa meira

Lokagrillveisla Reykjavík FM og Kjarnafæðis

Viljum byrja á því að þakka öllum þeim sem komu á síðustu grillveilslu Reykjavík FM 105,5, Kjarnafæðis og Carlsberg fyrir frábæra mætingu á Grill á Dill.  Þriðja og síðasta grillveislan í sumar verður svo haldin 10. ágúst næstkomandi.
Lesa meira

Kjarnagrill

Það hefur myndast hefð fyrir því að starfsmenn Kjarnafæðis safnist saman föstudagskveldið fyrir verslunarmannahelgi og grilla og skemmta sér. Í ár var engin undantekning og var Kjarnaskógur fyrir valinu að vanda, enda skógurinn skírður í höfuðið á Kjarnafæði.
Lesa meira

Básateikning af Matur-inn 2007 komin

Yfirlitsmynd af sýningarsvæðinu á Matur-inn 2007 er komin á vefinn localfood.is. Sýningarsvæðið innan dyra er í tveimur sölum í VMA. Gólfplan (teikning) verður eftirleiðis reglulega uppfærð miðað við pantanir og niðurröðun.
Lesa meira