Kokkalandsliðið undirbýr sig fyrir Ólympíuleikana

Frá æfingu
Frá æfingu
Landslið Íslands í matreiðslu stendur í ströngu þessa dagana við æfingar fyrir Ólympíuleikana sem haldnir verða síðar á þessu ári í Þýskalandi.  Mikil vinna við útfærslu hugmynda er að baki og framundan er tímabil þar sem framleiðsla á réttunum er þaulæfð og öll vinnubrögð fínpússuð þannig að allt verði fullkomið þegar að keppninni kemur.

Mikill áhugi og metnaður er í landsliðshópnum enda liðið skipað úrvals fagmönnum sem sætta sig ekki við minna en framúrskarandi árangur, enda er Ísland í 9. sæti á alþjóðlegum styrkleikalista í matreiðslu.  Stefnan er að bæta þann árangur og eru liðsmenn tilbúnir að leggja allt í sölurnar til að svo megi verða enda væntingarnar miklar.

Keppnismatseðilinn sem notaður verður á Ólympíuleikunum hefur verið ákveðinn: 

Forréttur
Saltfiskur og humar með sultuðum tómötum og skelfisksósu

Aðalréttur
Villisveppa og pecanhjúpað hreindýr framreitt á sveppa og blómkálsflani með madeira soðgljáa 

Eftirréttur
Súkkulaði og appelsínusinfónía með rósmarín og heitu súkkulaði “Surprise” 

Fylgist með á freisting.is