Fréttir

Matur-inn 2007

Það er troðfullt hús af fólki á sýningunni Matur-inn 2007 og starfsmenn Kjarnafæðis standa í ströngu í básnum við að gefa fólki smakk af hinum frábæru framleiðsluafurðum fyrirtækisins. Talið er að um 5000 manns hafi mætt á fyrri dag sýningarinnar og hafði starfsfólk sýningarinnar nóg að gera. Mikil ánægja er meðal sýningargesta og sýnenda enda sýningin öll hin glæsilegasta. Sýningunni verður haldið áfram á sunnudag, frá kl. 11-17.
Lesa meira

Norðlenskum mat og matarmenningu gerð skil á sýningunni MATUR-INN 2007

Um næstu helgi verður sýningin MATUR-INN 2007 haldin í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Fyrir henni stendur félagið Matur úr héraði – Local Food og er sýningunni ætlað að endurspegla fjölbreytni í mat og matarmenningu á Norðurlandi. Sýning undir sama nafni var haldin fyrir tveimur árum en sýnendur nú eru nálega helmingi fleiri og dagskrá ennþá fjölbreyttari. Meðal viðburða á sýningunni er úrslitakeppni Klúbbs matreiðslumeistara um titilinn Matreiðslumaður ársins 2007. Sýningin verður opin kl. 11 -17 á laugardag og sunnudag og er aðgangur ókeypis. Formleg opnun verður kl. 14 á laugardag þegar Einar Kr. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, heimsækir sýninguna. ► Um 60 sýnendur ► Úrslitakeppni um titilinn „Matreiðslumaður ársins 2007“ ► Frumkvöðlaverðlaun félagsins „Matur úr héraði – Local Food“ veitt ► Markaðstorg, borðbúnaðarsýning, matreiðslukeppni þjóðþekktra einstaklinga, keppni í samlokugerð, fræðslustofur (workshop) og margt fleira  
Lesa meira

Sýnendur stefna á sjöunda tuginn!

Nú er ljóst að MATUR-INN 2007 verður langstærsta sýning sem haldinn hefur verið norðan heiða og einungis er helguð mat og matarmenningu. Síðustu dagana hefur stöðugt bæst á sýnendalistann og eru sýnendur nú komnir yfir 60 talsins! Sýningin mun endurspegla mikla breidd í matarmenningunni á Norðurlandi því auk fjölda sýnenda af Eyjafjarðarsvæðinu verða mjög öflugir básar frá Þingeyingum og Skagfirðingum.
Lesa meira

Einar Kr. Guðfinnsson heiðursgestur á opnunardeginum

Einar Kr. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, verður heiðursgestur við opnun sýningairnnar MATUR-INN 2007 en ráðuneytin munu styðja sýninguna. Sýningarsvæðið opnar kl. 11:00 á laugardagsmorgun (13. okt) en formleg opnun verður kl. 14:00. Félagið Matur úr héraði kann þeim bestu þakkir fyrir velviljann.
Lesa meira

Margrét og Gestur Einar þulir á sýningunni

Útvarpsfólkið Gestur Einar Jónasson og Margrét Blöndal hafa tekið að sér að vera þulir á sýningarsvæðinu meðan á sýningunni stendur. Þau munu vekja athygli gesta á þeim fjölmörgu viðburðum sem í húsinu verða, bæði í sýningarsölum, í eldhúsinu og á sviði Gryfjunnar.
Lesa meira

Úrslitakeppni matreiðslumanna á MATUR-INN 2007

Tekin hefur verið ákvörðun um að lokaumferðin í keppninni um titilinn "Matreiðslumaður ársins 2007" fari fram á sýningunni MATUR-INN 2007. Keppnin er haldin af Klúbbi matreiðslumeistara og munu fimm matreiðslumenn keppa til úrslita.
Lesa meira

Vopnfirðingar svíða sína hausa á gamla mátann

Sláturhús Vopnafjarðar er annað tveggja sláturhúsa sem svíða hausa með gamla laginu, þ.e. með kósangasi, og hreinsa svo sviðin með hreinu vatni. Slík meðferð sviða gefur að sögn sláturhússtjóra hærra verð og þau seljast jafnan upp.
Lesa meira

Enn betri Svikinn héri

Svikni hérinn frá Kjarnafæði hefur ávallt notið mikilla vinsælda, ekki síst í skólamötuneytum. Nú hefur þessi vinsæla vara verið gerð enn betri. Búið er að auka kjötmagnið í Svikna héranum frá Kjarnafæði og lækka fituinnihaldið.
Lesa meira

Nýr sölumaður á Akureyri

Nýr sölumaður, Jón Ævar Sveinbjörnsson , hefur tekið til starfa Akureyri. Jón mun sinna öllum verslunum á Akureyri. Síminn hjá Jóni er 460-7424/840-7427 og netfangið er jon@kjarnafaedi.is.
Lesa meira

Jón Maríuson íslandsmeistari í pylsuáti 2007

Íþróttagoðið Jón Maríuson kom sá og sigraði á íslandsmeistarmótinu í pysluáti. Gerði Jón sér lítið fyrir og setti íslandsmet í greininni, hann torgaði 14 pylsum á 12 mínutum!!
Lesa meira