Matur-inn 2007

Það er troðfullt hús af fólki á sýningunni Matur-inn 2007 og starfsmenn Kjarnafæðis standa í ströngu í básnum við að gefa fólki smakk af hinum frábæru framleiðsluafurðum fyrirtækisins. Talið er að um 5000 manns hafi mætt á fyrri dag sýningarinnar og hafði starfsfólk sýningarinnar nóg að gera. Mikil ánægja er meðal sýningargesta og sýnenda enda sýningin öll hin glæsilegasta. Sýningunni verður haldið áfram á sunnudag, frá kl. 11-17.

Það er troðfullt hús af fólki á sýningunni Matur-inn 2007 og starfsmenn Kjarnafæðis standa í ströngu í básnum við að gefa fólki smakk af hinum frábæru framleiðsluafurðum fyrirtækisins.

Talið er að um 5000 manns hafi mætt á fyrri dag sýningarinnar og hafði starfsfólk sýningarinnar nóg að gera. Mikil ánægja er meðal sýningargesta og sýnenda enda sýningin öll hin glæsilegasta. Sýningunni verður haldið áfram á sunnudag, frá kl. 11-17.

Básinn hjá Kjarnafæði er glæsilegur og lokkar bragðlaukana. Saltlærið vinsæla hreinlega rýkur út og einnig er boðið uppá tvíreykt hangilæri, Kjarnafæði pepperoni og súrmat.

Skoðaðu myndir frá sýningunni (smella hér)