Enn betri Svikinn héri

Svikni hérinn frá Kjarnafæði hefur ávallt notið mikilla vinsælda, ekki síst í skólamötuneytum. Nú hefur þessi vinsæla vara verið gerð enn betri. Búið er að auka kjötmagnið í Svikna héranum frá Kjarnafæði og lækka fituinnihaldið.

Þessi breyting hefur fallið í góðan jarðveg og hafa viðskiptavinir, sem prófað hafa endurbættu útgáfuna, haft samband og lýst yfir ánægju með breytinguna, bragðið einstaklega gott og minni fita gerir mötuneytum, sem og almennum neytendum auðveldara að uppfylla manneldismarkmið.

Svikni hérinn fæst í 750 g. neytendapakkningum, sem og 2,5 kg og 5 kg gastrobökkum fyrir mötuneyti.