Lúsíubrauð

Þann 13. desember er mikið um dýrðir í Svíaríki. Þá ganga hvítklæddar stúlkur og rauðklæddir drengir um í fylkingum með ljós í hönd og knýja dyra á sænskum heimilum, syngja lúsíusöngva og fá að launum piparkökur og svokölluð lúsíubrauð, sem bera keim af hinu dýrmæta safrani.

50 g  Smjör 
5 dl  Mjólk 
1 bréf  Þurrger 
1 tsk  Salt 
2 tsk  Sykur 
900 g  Hveiti 

  • Blandið megninu af hveitinu (ágætt að skilja eftir uþb. 100 g), geri, salti og sykri. 
  • Hitið mjólk og smjör í potti (37°C) og blandið saman við hveitið.
  • Hnoðið vel og setjið í skál, lokið fyrir með rökum klút eða plastfilmu og látið hefast í uþb. 1 klst.

1-2 br  Safran (0,5-1 g) 
1 stk  Sykurmoli 
125 g  Smjör 
1,5 dl  Sykur 
1 stk  Egg 

Egg til penslunar og nokkrar rúsínur.

  • Merjið safranið og sykurmola með morteli (einnig er hægt að leysa safranið upp í brennivínstári).
  • Hrærið smjörið með sykrinum og bætið svo saffrani og eggi út i og hrærið vel.
  • Hnoðið saman deigið og safransmjörið. Bætið við afganginum af hveitinu og hnoðið létt.
  • Gerið mjóa pylsu úr deiginu og klippið til og formið skemmtileg Lúsíubrauð, td. slaufur, orma, snigla eða hvaðeina sem hugurinn skapar.
  • Leggið brauðin á plötu með bökunarpappír, penslið með eggi og skreytið með rúsínum í endana. Sumir strá líka perlusykri yfir.
  • Hefið þar til brauðin erum tvöföld að stærð.
  • Bakið miðjum ofninum í 8-10 mín við 200°C.