Fylltur laukur með hrísgrjónum og steinselju

Flott meðlæti sem einfalt er að matreiða. Smellpassar með flestum kjötréttum. Fyrir 4

Flott meðlæti sem einfalt er að matreiða. Smellpassar með flestum kjötréttum.
Fyrir 4

4 stk  Stórir laukar 
4 msk  Soðin hrísgrjón 
4 tsk  Steinselja, söxuð 
4 msk  Parmesanostur 
2 msk  Ólífuolía 
1 msk  Hvítvín (eða mysa) 
  Salt og pipar 

  • Flysjið laukana, skerið toppinn af og takið miðjuna innanúr.
  • Saxið miðjuna úr lauknum, mýkið í olíunni á pönnu, hellið hvítvíninu út á og látið malla í smástund áður en hrísgrjónunum og hinu hráefninu er blandað saman við og látið hitna vel í gegn áður en við setjum fyllinguna inn í laukana.
  • Bökum í 180°C heitum ofni í 45 mín.
  • Einnig má grilla laukinn á efri grindinni á grillinu.