Fetasalat

Einfalt gott salat sem hentar sérstaklega vel með grillkjöti.Einfalt gott salat sem hentar sérstaklega vel með grillkjöti.100 g Fetaostur
1 stk Salatlaukur, sneiddur
2 stk Tómatar, sneiddir
1 stk Jöklasalat, rifið
3 msk Matarolía
1 msk Edik

½ tsk Salt
1
tsk Sætt sinnep
Nýmulinn pipar

Blandið saman í skál feta, lauk, tómötum og salati.
Hrærið saman olíu, ediki, salti og sinnepi. Smakkið til með pipar. Hellið yfir salatið rétt áður en það er borið fram.

Í staðinn fyrir jöklasalat er hægt að nota hvaða annað gott salat sem er.