Bóndabrauð

Gamaldags íslenskt brauð sem einfalt er að baka. Ódýrt, hollt og gott.

Gamaldags íslenskt brauð sem einfalt er að baka. Ódýrt, hollt og gott.

400 g
Hveiti
50 g
Heilhveiti
50 g
Rúgmjöl
2 tsk
Þurrger
3 dl
Mysa (eða vatn)
2 tsk
Salt
1 msk
Smjör (eða matarolía)
1 msk
Síróp

  • Blandið saman mjöli og þurrgeri í skál.
  • Velgið mysuna og blandið saman við mjölið, ásamt salti, smjöri og sírópi.
  • Hnoðið degið vel og leggið svo í skál með rökum klút eða plastfilmu yfir. Látið hefast í 1 klst.
  • Sláið degið niður og mótið fallegt brauð (eða setjið í brauðform), hyljið degið og það látið hefast í uþb. 45 mín eða þar til það hefur tvöfaldað sig.
  • Bakið á 180°C í uþb. 35 mín.