Kjötbollur í karrí

Ein sígild sem er alveg tilvalin á köldu vetrarkveldi. Auðvelt er að gera bollurnar fyrirfram, geyma í frysti og taka fram þegar á þarf að halda.

Ein sígild sem er alveg tilvalin á köldu vetrarkveldi. Auðvelt er að gera bollurnar fyrirfram, geyma í frysti og taka fram þegar á þarf að halda.

500 g  Svínahakk (eða annað gott hakk, s.s. sparhakk) 
1 stk  Laukur, rifinn eða fínsaxaður 
3 msk  Hveiti 
2,5 dl  Mjólk 
1 stk  Egg 
2 tsk  Salt 
  Pipar 

Sósa:

1 stk  Laukur, fínsaxaður 
20 g  Smjör 
1 msk  Karrí 
2 msk  Hveiti 
4 dl  Kjötbolluvatn (síað) 
1 dl  Rjómi 
1 stk  Epli, helst súrt 
  Salt og pipar 
  • Blandið hakki og öðrum hráefnum saman í skál og hrærið gott kjörfars. Látið farsið hvíla í hálftíma.
  • Mótið litlar kjötbollur með teskeið og setjið í sjóðandi vatn. Látið bollurnar sjóða í 6-7 mín.
  • Takið bollurnar upp með fiskispaða og látið renna vel af þeim.
  • Sósa: Steikið laukinn í smjörinu og blandið karrí saman við.
  • Stráið hveiti yfir og bakið sósuna upp með síuðu kjötbolluvatni, hrærið stöðugt.
  • Hrærið rjómanum saman við og látið sósuna malla í smástund.
  • Rífið eplið gróft og bætið í sósuna.
  • Smakkið sósuna til með salti og pipar.
  • Hellið bollunum út í og hitið í gegn.
  • Berið bollurnar fram með td. hrísgrjónum og/eða kartöflum og góðu rúgbrauði.
Verði ykkur að góðu!


Frekari upplýsingar: