Entrecote með rauðvínssósu

Ef eitthvað fínt stendur til, þá er þessi tilvalin. Fljótleg og auðveld. (Fyrir 4) 

Innihald:
 

  • 4 stk. Entre cote-steikur (nautafille með fitu)
  • Salt og pipar


 

Rauðvínssósa  

6 stk  Skalottlaukar 
250 g  Sveppir
2 dl  Rauðvín 
30 g 

Smjör 

2-3 dl  Dökkt kjötsoð (vatn + kjötkraftur)  

 

Aðferð:

  1. Steikið fínhakkaðan laukinn og fjórðung af sveppunum.
  2. Bætið við rauðvíni. Sjóðið niður um uþb. helming og bætið þá við kjötsoðinu. Látið suðuna koma upp og hrærið smjörinu saman við.
  3. Brúnið steikurnar á báðum hliðum á vel heitri pönnu. Lækkið hitann og steikið steikurnar að eigin smekk.
  4. Kryddið með salti og pipar.
  5. Ristið sveppina á þurri pönnu þar til þeir verða gyltir. Stráið smá salti yfir þá.
     

Verði ykkur að góðu!


Frekari upplýsingar: