Lamb á spjóti

Lamb á spjóti
Lamb á spjóti

Ein besta samloka í heimi er kjötspjót á baguette samloku með sýrðum rjóma og ögn af klettasalati. Bætið vel af salati með spjótunum. Líka er hægt að skipta út grænmeti fyrir kartöflur og ávexti til að krydda tilveruna.

Innihald:

  • 120 g á mann af úrbeinuðu lambakjöti
  • 1 box sveppir
  • 1 stk rauð paprika
  • 1 stk rauðlaukur
  • 1 stk kúrbítur
  • 120 gr á mann af smáum kartöflum
  • 1 matskeið svartur pipar mulinn
  • 1 matskeið gróft salt
  • 1 teskeið soya sósa
  • 1 dl matarolía
  • 1 dl 10% sýrður rjómi
  • 1 teskeið flórsykur
  • 2 grillspjót á mann

Aðferð:
 

Sneiðið kjötið í teninga og þerrið, leggið síðan í skál ásamt soya sósu og smá
matarolíu.
 
Setjið kartöflurnar yfir í suðu, gætið þess að sjóða ekki of lengi.

Skerið grænmetið í kubba sem eru u.þ.b. 2,5 cm á kant, og leggið til hliðar.

Þessu næst er grænmetið og kjötið sett á grillspjótin og kryddað með pipar og smá
salti (ath að soya sósan er sölt).

Spjótin eru síðan steikt á grillpönnu í u.þ.b. 2 mín á hverri hlið.

Sósan er útbúin á meðan kjötið er á pönnunni. Blandið saman sýrðum rjóma,
u.þ.b. 1 teskeið af svörtum pipar, flórsykrinum og smá salti.

En einnig getur verið gott að láta smá ferskt salat fylgja með til að létta aðeins
réttinn.


Verði ykkur að góðu!
 

Frekari upplýsingar: