Íslensk kjötsúpa

Þessi gamla góða!

1 kg   Súpukjöt, lamba eða kinda. Einnig má nota lambagúllas!
1,8 l Vatn 
1 stk  Laukur, saxaður 
500 g  Gulrófur 
250 g  Gulrætur 
100 g  Hvítkál 
1 dl  Hrísgrjón 
2 msk  Hafragrjón 
  Satl og pipar 

 

  • Kjötið er sett í pott, vatninu hellt yfir og hitað að suðu. Froða fleytt ofan af.
  • Lauk hrært saman við. Soðið í um 40 mínútur (ef kindasúpukjöt er notað, er bætt við 1 klst).
  • Gulrófum, gulrótum, hvítkáli og hrísgrjónum bætt út í og soðið í 15 mínútur til viðbótar.
  • Hafragrjón sett út í og soðið í um 5 mínútur, eða þar til allt grænmetið er meyrt.
  • Smakkað og bragðbætt með salti og pipar, ef þarf.
  • Kjötið er ýmist borið fram í súpunni eða með henni á sérstöku fati.
  • Ómissandi með góðri kjötsúpu er gott rúgbrauð.
Verði ykkur að góðu!
 

Frekari upplýsingar: