Lax með humar

Lax með humar
Lax með humar
Laukurinn er brytjaður frekar smátt og mýktur í smjöri á pönnu. Gæta vel að hitanum því laukurinn má ekki brúnast. Þegar hann er mátulegur, þá er hann veiddur upp af pönnunni og settur til hliðar.

Innihald:

  • 600g lax
  • 350-400 g skelflettir humarhalar
  • 1 laukur
  • 1-2 hvítlauksrif eftir smekk
  • 200g smjör
  • Salt og pipar
  • 1 1/2 dl hvítvín
  • 300g litlar soðnar kartöflur

Aðferð:

Laukurinn er brytjaður frekar smátt og mýktur í smjöri á pönnu. Gæta vel að
hitanum því laukurinn má ekki brúnast. Þegar hann er mátulegur er hann veiddur
upp af pönnunni og settur til hliðar.

Bætt við meira af smjöri á pönnuna bætið við laxinum og humar sem eru steiktir
smástund (eiga ekki að gegnumsteikjast), saltað aðeins og piprað. Þá eru þeir teknir
af pönnunni og geymdir.

Hvítlaukurinn er saxaður smátt og settur á pönnuna. Hvítvíninu hellt yfir og látið sjóða
upp að mestu við vægan hita.

framreiðið með ristuðum kartöflum og grófu brauði.


Verði ykkur að góðu!