Verð á kjöti lægra á Íslandi en í samanburðarlöndum

Niðurstöður úr evrópskri könnun á verði matvæla, áfengis og tóbaks, sem gerð var vorið 2009, hafa verið gefnar út og er að finna á vef Hagstofu Íslands. Í þeim ríkjum sem þátt tóku var hlutfallslegt verðlag kjötvara á Íslandi 1% lægra en að meðaltali í 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins.

Í könnuninni nú var verðlag á kjöti í hinum norðurlöndunum mun hærra en á Íslandi: í Noregi, 62% hærra en meðaltalið, í Danmörku 31% hærra og í Finnlandi 20% hærra. Í Svíþjóð var verðlag næst hinu íslenska eða 8% yfir meðaltali.

Í heild var hlutfallslegt verðlag matvæla á Íslandi 4% hærra en að meðaltali í 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins. Það er mikil breyting frá fyrri könnun, sem gerð var árið 2006, en þá var verðlag hæst á Íslandi eða 61% hærra en í Evrópusambandinu.

Samanburðurinn náði til Íslands auk 36 annarra Evrópuríkja, það er 27 núverandi aðildarríkja Evrópusambandsins, Noregs, Sviss, Albaníu, Bosníu Hersegóvínu, Króatíu, Makedóníu, Serbíu, Svartfjallalands og Tyrklands.

Hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, hafði umsjón með könnuninni en Hagstofa Íslands sá um framkvæmd hennar á Íslandi. Í könnuninni er notað meðalverð og -gengi ársins 2009. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á hagstofa.is.