Samið um límmiðaprentun við Ásprent

Sl. föstudag skrifuðu G. Ómar Pétursson framkvæmdastjóri Ásprents Stíls ehf. og Eðvald Valgarðsson innkaupa- og gæðastjóri Kjarnafæðis undir samning um límmiðaprentun.Sl. föstudag skrifuðu G. Ómar Pétursson framkvæmdastjóri Ásprents Stíls ehf. og Eðvald Valgarðsson innkaupa- og gæðastjóri Kjarnafæðis undir samning um límmiðaprentun.

Í samningnum felst að Ásprent tekur að sér prentun allra límmiða sem eru í notkun hjá Kjarnafæði, en um er að ræða um fimm milljón miða á ári.

Samningur við Kjarnafæði
Eðvald og G. Ómar handsala samninginn

“Það er okkur mikils virði að geta flutt framleiðslu límmiðanna nær okkur og þar með lagt okkar af mörkum til að efla prentiðnaðinn í bænum. Eftir að nýja límmiðaprentvélin kom í Ásprent hafa starfsmenn þar sýnt okkur að þeirra framleiðsla stenst fyllilega samanburð við það sem best gerist á landinu, bæði í gæðum og verði. Það var því einföld ákvörðun að flytja framleiðsluna til Ásprents” segir Eðvald Valgarðsson hjá Kjarnafæði.
Fréttin birtist upphaflega á vef Ásprents