Sænska jólapylsan uppseld hjá Kjarnafæði

Sænska jólapylsan er uppseld hjá Kjarnafæði. Salan hefur farið langt fram úr áætlunum og fóru síðustu jólapylsurnar út á fimmtudaginn. En fólk þarf ekki að örvænta, Sænska jólapylsan er enn til í flestum verslunum, þótt hún seljist hratt upp.

Sænska jólapylsan frá Kjarnafæði þykir ekki einungis góð á bragðið og skemmtileg nýjung, heldur hefur það líka fallið vel í kramið að hún er án allra aukaefna, sem og laus við mjólk, hveiti, nítrítsalt og egg og hentar því vel fyrir þá sem þjást af fæðuóþoli eða -ofnæmi.