Nýtt - Víkingasteik

Kjarnafæði hefur sett á markað frábæra nýjung á grillið: Víkingasteik. Víkingasteik er beinlaus eðalsteik, tilbúin á grillið eða pönnuna.

Kjarnafæði hefur sett á markað frábæra nýjung á grillið: Víkingasteik. Víkingasteik er beinlaus eðalsteik, tilbúin á grillið eða pönnuna.

Víkingasteikin er fullmeyrnað ung-hrossafile, sérlega fitulítið (einungis 6% fita), skorið í hæfilega þykkar steikur. Víkingasteikin er í piparlegi, sem fullkomnar bragðið og gefur ljúft eftirbragð.

Það er einfalt að elda Víkingasteikina, einungis þarf að grilla/steikja í nokkrar mín. og hún er til. Með Víkingasteikinni er frábært að bera fram köldu piparsósuna frá Kjarnafæði, ásamt bökuðum eða steiktum kartöflum og góðu salati.

Víkingasteikin er að sjálfsögðu án MSG.

Innihald:
Ung-hrossafilé, vatn (8%), salt, krydd, rotvarnarefni E262, þráavarnarefni E300/331, bindiefni E407/450.

Næringargildi í 100 g:
Orka: 579 kJ/138 kkal
Prótein: 18 g
Kolvetni: 3 g
- þar af sykur: 0,0 g
Fita: 6 g
- þar af mettaðar fitusýrur: 2,1 g
Trefjar: 0,7 g
Natríum: 0,1 g