Nýtt – úrvals lambasneiðar

Kjarnafæði hefur hafið sölu á úrvals lambasneiðum í neytendapakkningum. Tvær tegundir eru í boði, 1.fl. lambalærissneiðar og t-beins lambakótelettur.   

Kjarnafæði hefur hafið sölu á úrvals lambasneiðum í neytendapakkningum. Tvær tegundir eru í boði, 1.fl. lambalærissneiðar og t-beins lambakótelettur.   

1. fl. lambalærissneiðarnar eru sérvaldar sneiðar úr miðlærinu. Þær eru sérlega kjötmiklar og nánast án beins og fitu.

T-beins lambakóteletturnar eru eins og nafnið gefur til kynna valdar úr þeim hluta hryggsins sem hryggvöðvinn (file) og lundin eru á. Það er því um einstakar gæðaafurðir að ræða, bestu bitarnir af lambinu.

 Vörurnar eru frosnar, lærissneiðarnar pakkaðar tvær í pakkningu og svo hins vegar sex stk. af t-beins kótelettunum.