Nýtt - Úrvals hamborgarar í neytendapakkningu

Kjarnafæði hefur hafið sölu á úrvals hamborgurum í neytendapakkningum. Úrvals hamborgararnir eru úr íslensku úrvals nautakjöti - engum aukaefnum er bætt í borgarana, heldur er þetta 100% hreint hráefni.

Úrvals hamborgararnir eru í ‘fullorðins’ stærð, 120 gr. stk - enda njóta gæðin sín best í þessari stærð. Úrvals hamborgararnir eru frostvara og eru í handhægum 10 stk. pakkningum. Það er fljótlegt að þíða þá en auðvitað má einnig skella þeim frosnum beint á grillið/pönnuna.

Úrvals hamborgararana eru bestir miðlungs steiktir (medium), þannig að kjötbragðið njóti sín sem best.

Innihaldslýsing, smella hér