Nýtt - Sterkt Pepperoni

Allir þekkja hið fræga Kjarnafæði pepperoni, enda margverðlaunað og einstakt pepperoni. Nú hefur Kjarnafæði líka sett á markað Pepperoni – extra sterkt.

Allir þekkja hið fræga Kjarnafæði pepperoni, enda margverðlaunað og einstakt pepperoni. Nú hefur Kjarnafæði líka sett á markað Pepperoni – extra sterkt.

Sterkt Pepperoni frá Kjarnafæði byggir að grunni til á sömu uppskrift en í Sterku Pepperoni er sett auka magn af Habanero pipar með sem gefur aukinn kraft í bragðið og kallar það besta fram í bragðlaukunum.

Sterkt Pepperoni er að sjálfsögðu frábært á pizzur en ekki síður gott í aðra matreiðslu, ss. pasta, risotto og aðra hrísgrjónarétti, samlokur, eggjakökur osfrv. Einnig er frábært að steikja pepperoni og nota það td. í salöt, kartöflurétti eða samlokur.

Vekja skal athygli á því að Sterkt Pepperoni er ekki fyrir viðkvæma.