Nýtt – Sænsk jólapylsa

Það er aldagömul hefð í Svíþjóð að bjóða upp á sérstaka jólapylsu um hátíðina. Nú hefur Kjarnafæði sett á markað ekta sænska jólapylsu. Það er aldagömul hefð í Svíþjóð að bjóða upp á sérstaka jólapylsu um hátíðina. Nú hefur Kjarnafæði sett á markað ekta sænska jólapylsu.

Uppskriftin er fengin frá Gamelstadens Chark í Gautaborg og er farið eftir ströngustu fyrirmælum um framleiðslu hennar. Þetta er ævaforn uppskrift, enda leggja Svíar mikið upp úr hefðinni við framleiðslu á Jólapylsum.

Í sænsku jólapylsunni frá Kjarnafæði er nauta- og svínakjöt og pylsan er krydduð með engifer og múskat, sem gefur henni ekta jólabrag.

Sænska jólapylsan er forsoðin og því þarf einungis að hita hana í potti en einnig má steikja hana á pönnu. Sígilt er að borða Sænska jólapylsu með kartöflustöppu, rauðbeðum eða –káli og ekki skemmir fyrir að hafa gott sinnep með.

Sænska jólapylsan er skemmtileg tilbreyting við hinn hefðbundna jólamat og lífgar upp á jólahlaðborðið.

Sænsk jólapylsa
Innihaldslýsing: Svínakjöt, nautakjöt, vatn, kartöflumjöl, salt, pipar, engifer, múskat.
Næringargildi: Orka 213 kkal/895 kJ, prótein 11 g, fita 17 g, kolvetni 4 g, natrium 0,7 g.