Nýtt - Herragarðs Svínakótelettur

Kjarnafæði hefur sett á markað nýja tegund af grillkjöti, Herragarðs svínakótelettur. Undir Herragarðsmerkið fer eingöngu sérlega meyrt og gott kjöt sem er sett í nýjan kryddlög frá kjötmeisturum Kjarnafæðis.

Herragarðskryddlögurinn þykir alveg einstaklega góður og mál manna sem hafa prófað Herragarðs Svínakóteletturnar að nú hafi kjötmeistarar Kjarnafæðis hitt enn einu sinn beint í mark. Herragarðskryddlögurinn einkennist af blöndu af kryddi og hunangi, sem gefur kótelettunum kraftmikið en þó nett sætt bragð, sem smellpassar við svínakjöt.

Herragarðs Svínakóteletturnar eru frábærar á grillið en þær eru að sjálfsögðu jafngóðar steiktar á pönnu. Gott er að bera Herragarðs Svínakótelettur fram með kartöflusalati og kaldri pipar- eða hvítlaukssósu frá Kjarnafæði.

Herragarðssvínakóteletturnar eru að sjálfsögðu án MSG, eins og annar grillmatur frá Kjarnafæði.