Nýtt - BBQ grísakótelettur

Kjarnafæði hefur sett á markað nýja frábæra tegund af grillkjöti, BBQ grísakótelettur, léttreyktar. Þetta er skemmtileg viðbót við grilllínu Kjarnafæðis og BBQ grísakóteletturnar hafa þegar fengið frábær viðbrögð, því það er mál manna sem hafa prófað kóteletturnar að nú hafi kjötmeistarar Kjarnafæðis hitt enn einu sinn beint í mark.  

Margir grillmeistarar hafa löngum valið að setja léttreykt kjöt í sætan grilllög áður en kjötið er eldað og hefur slíkt verið sérframleitt í Kjarnafæði fyrir veislur og veitingahús. Nú eru þessar stórkostlegu kótelettur loks komnar á almennan markað. BBQ grísakóteletturnar eru fyrst léttreyktar og síðan er sætur hunangsgrilllögur smurður á þær. Útkoman er bragðmiklar og sérlega ljúffengar kótelettur.

BBQ grísakótelettur eru frábærar á grillið en þær eru að sjálfsögðu jafngóðar steiktar á pönnu. Gott er að bera BBQ grísakótelettur fram með kartöflusalati og kaldri pipar- eða hvítlaukssósu frá Kjarnafæði.

BBQ grísakóteletturnar eru að sjálfsögðu án MSG, eins og annar grillmatur frá Kjarnafæði.

Innihaldslýsing og næringargildi, smella hér.