Nýr rammasamningur um fersk og frosin matvæli

Frá undirritun rammasamningsins
Frá undirritun rammasamningsins
Kjarnafæði og Norðanfiskur eru aðilar að nýjum rammasamningi Ríkiskaupa um kaup á ferskum og frosnum matvælum. Um er að ræða viðamikinn samning sem tekur til allra innkaupa á fersku og frosnu kjöti og fisk, sem og unnum kjöt- og fiskvörum. Samningurinn tók gildi 30.11.2009.

Samið var við Kjarnafæði og Norðanfisk um eftirtaldar vörutegundir:

  1. Lamba- og kindakjöt
  2. Nautgripakjöt
  3. Svínakjöt
  4. Annað kjöt (folalda-, hrossakjöt ofl.)
  5. Fiskur
  6. Unnar kjöt- og fiskvörur
  7. Hráar/soðnar saltaðar vörur

Auk ofantaldra atriða sem samið var við Kjarnafæði og Norðanfisk var einnig í útboði ferskt grænmeti og ávextir, auk kaffi- og fundaveitinga þ.m.t gos og ávaxtasafa. Alls var samið við 12 aðila.Rammasamningurinn gildir fyrir alla áskrifenda rammasamningskerfisins. Á næstu dögum munu Ríkiskaup senda verð- og vörulista ofangreindra seljenda til áskrifenda rammasamningakerfisins. Ennfremur munu sölumenn Kjarnafæðis hafa sjálfir samband við kaupendur og kynna þau frábæru kjör sem eru í boði.Allar nánari upplýsingar um kjör í þessum rammasamningi eru aðgengilegar kaupendum á rammavefnumEinnig hvetjum við áskrifendur að rammasamningskerfinu að hafa samband við sölumenn Kjarnafæðis ef einhverjar spurningar vakna (460-7400).