Ný auglýsing fyrir Kjarnafæði Pepperoni

Á gamlárskvöld var frumsýnd ný og glæsileg auglýsing fyrir Kjarnafæði Pepperoni. Auglýsingin er kraftmikil, ögrandi orkusprengja - líkt og Kjarnafæði Pepperoni!

Á gamlárskvöld var frumsýnd ný og glæsileg auglýsing fyrir Kjarnafæði Pepperoni. Auglýsingin er kraftmikil, ögrandi orkusprengja - líkt og Kjarnafæði Pepperoni!

Þessi nýja auglýsing er klárlega umfangsmesta auglýsingarverkefni Kjarnafæðis hingað til. Metnaðurinn var mikill og var Geimstofan fengin til að sjá um verkið. Flutt voru um 3,5 tonn af tækjabúnaði frá Reykjavík til Akureyrar þar sem tökur fóru fram, lagður var undir sig íþróttasalurinn í Síðuskóla og upptökusett smíðuð þar inni og voru meira en 35 manns við tökur á þessum auglýsingum héðan og þaðan úr heiminum en þó aðallega frá Íslandi og Danmörku.

Leikstjóri auglýsingarinnar er Baldvin Z en hann þykir einn efnilegasti leikstjóri Íslands og klárt að Kjarnafæði veðjaði á réttan hest þegar hann var fenginn til að stýra verkinu.

Nýja Kjarnafæði Pepperoni auglýsingin tekur við af auglýsingunum um 'Danmerkurævintýri Pepperoni Péturs' en þær hafa notið mikilla vinsælda hjá íslensku þjóðinni og hjálpað til við að margfalda sölu á Kjarnafæði Pepperoni.