Kokkalandsliðið stóð sig frábærlega á Ólympíuleikunum

Óskvikin gleði á palli
Óskvikin gleði á palli

Íslenska kokkalandsliðið hefur lokið keppni á Ólympíuleikunum í matreiðslu sem fram fóru í Þýskalandi um síðustu helgi og í vikunni sem er að líða. Kokkarnir stóðu sig frábærlega eins og við var að búast enda liðið uppfullt af hæfileikum. Kjarnafæði er stoltur samstarfsaðili liðsins og vill starfsfólk koma á framfæri hamingjuóskum til allra þeirra er koma að liðinu. Nánar um árangurinn má lesa hér fyrir neðan í fréttatilkynningu frá landsliðinu. 

Kokkalandsliðið fékk gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun og bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í matreiðslu sem fram fóru í Þýskalandi. Singapore var sigurvegari Ólympíuleikanna í samanlögðum stigum, Finnland var í öðru sæti og Sviss í þriðja sæti. Á leikunum er keppt í mörgum greinum og var Ísland í 3. sæti landsliða í eftirréttum “Culinary Pastry Art”.

Kokkalandsliðið vann silfurverðlaun fyrir heita matinn á Ólympíuleikunum í Þýskalandi eftir frammistöðu sína í keppninni í gærkvöldi. Kokkalandsliðið hafði 6 klukkustundir til að matreiða þriggja rétta máltíð fyrir dómara og 110 gesti.

Þráinn Freyr Vigfússon, þjálfari liðsins: “Við erum mjög ánægð með þennan árangur. Liðið stóð sig vel í keppninni í gær og silfurverðlaunin staðfesta að við erum með mjög sterkt og vel æft lið sem vinnur vel saman. Við höfum lagt áherslu á að nota hágæða íslenskt hráefni. Þetta hefur fallið vel í kramið hjá dómurunum. Í dómgæslunni er ekki bara bragð, útlit, samsetning og hráefnisval metið heldur er einnig tekið mið af fagmennsku við undirbúning og hvernig liðið vinnur saman að matargerðinni í keppniseldhúsinu. Í þeim þáttum stóð liðið sig einnig vel. “

Það er mikilvægt fyrir Kokkalandsliðið að hafa öfluga aðila sem styðja við bakið á okkur og erum við þakklát öllum bakhjörlunum og samstarfsaðilunum sem lögðu sitt af mörkum til að við gætum tekið þátt í keppninni. Við erum að keppa við fjölmennar þjóðir sem leggja mikið undir og því er árangurinn sem við náðum enn eftirtektarverðari. Þessi glæsilegi árangur liðsins gefur okkur möguleika á að efla liðið enn frekar fyrir næstu keppnisþátttöku,” segir Þráinn.

Í Kokkalandsliðinu eru:
Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri liðsins 
Þráinn Freyr Vigfússon faglegur framkvæmdastjóri 
Bjarni Siguróli Jakobsson fyrirliði 
Björn Bragi Bragason forseti KM/framkvæmdastjórn 
Steinn Óskar Sigurðsson liðsstjóri 
Jóhannes Steinn Jóhannsesson liðsstjóri 
Fannar Vernharðsson 
Ylfa Helgadóttir 
Hafsteinn Ólafsson 
Axel Clausen 
Garðar Kári Garðarsson 
Hrafnkell Sigríðarson 
Atli Þór Erlendsson 
Sigurður Ágústsson 
Georg Arnar Halldórsson
María Shramko

Þá er rétt að minna á Instagram síðu liðsins sem er icelandicculinaryteam og Twitter reikningur liðsins er kokkalandslidid.