Kokkalandsliðið á leið á Ólympíuleikana

Landsliðshópurinn sem keppir í Þýskalandi
Landsliðshópurinn sem keppir í Þýskalandi

Kokkalandslið Íslands með nokkra af færustu kokkum landsins er á leið á Ólympíuleikana sem fram fer að þessu sinni í Þýskalandi. Kjarnafæði er afar stoltur samstarfsaðili Kokkalandsliðsins og vonar auðvitað að okkar fólk komi heim með gullverðlaun um hálsinn. Að taka þátt krefst mikils undirbúnings sem staðið hefur yfir í um 18 mánuði og þá þurfa þau að flytja um 4 tonn af búnaði ásamt hágæða íslensku hráefni sem þau fá meðal annars hjá Kjarnafæði, til Þýskalands.

Hér á eftir fylgir fréttatilkynning frá hópnum og má lesa nánar um keppnina og þeirra aðkomu að henni hér fyrir neðan.

Kokkalandsliðið heldur af stað til Þýskalands á fimmtudagsmorgun, 20. október, til að keppa á Ólympíuleikunum í matreiðslu. Kokkalandsliðið hefur æft síðustu 18 mánuði fyrir keppnina. Búið er að senda hátt í 4 tonn af búnaði til Þýskalands en liðið þarf að setja upp fullbúið eldhús á keppnisstað. Þá er ótalið hráefnið sem flytja þarf á staðinn en Kokkalandsliðið leggur áhersla á að nota sem mest af hágæða íslensku hráefni í matargerðina.

Ólympíuleikarnir, IKA Culinary Olympics, er haldin á fjögurra ára fresti. Þar mætast um 2.000 af færustu kokkum heimsins sem keppa sín á milli um gull, silfur og brons verðlaun. Keppnin hefst 21. október og stendur til 26. október. Lið frá um 40 þjóðum keppa á leikunum. Kokkalandsliðið keppir í tveimur greinum, annars vegar er keppt í köldu borði eða Culinary Art Table og hins vegar er keppt í heitum mat eða Hot Kitchen. Í keppninni um heitu réttina er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétt, aðalrétt og eftirrétt sem eldað er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti. Í Culinary Art Table eru sýndir yfir 30 réttir sem tekur rúmlega tvo sólarhringa að útbúa. Dómarar alls staðar að úr heiminum með tilheyrandi réttindi dæma í keppnunum þar sem meðal annars er tekið mið af bragði, útliti, samsetningu, hráefnisvali og fagmennsku við undirbúning og matargerð.

Í Kokkalandsliðinu eru:
Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri liðsins 
Þráinn Freyr Vigfússon faglegur framkvæmdastjóri 
Bjarni Siguróli Jakobsson fyrirliði 
Björn Bragi Bragason forseti KM/framkvæmdastjórn 
Steinn Óskar Sigurðsson liðsstjóri 
Jóhannes Steinn Jóhannsesson liðsstjóri 
Fannar Vernharðsson 
Ylfa Helgadóttir 
Hafsteinn Ólafsson 
Axel Clausen 
Garðar Kári Garðarsson 
Hrafnkell Sigríðarson 
Atli Þór Erlendsson 
Sigurður Ágústsson 
Georg Arnar Halldórsson
María Shramko

Þá er rétt að minna á Instagram síðu liðsins sem er icelandicculinaryteam og Twitter reikningur liðsins er kokkalandslidid.

Starfsfólk Kjarnafæðis óskar ykkur velfarnaðar og að allt gangi eins og lagt er upp með.