Grillveisla Kjarnafæðis og Reykjavík FM

Önnur grillveisla Reykjavík FM 105,5, Kjarnafæðis og Carlsberg mun fara fram 27. júlí á Dillon. Góð tónlist, frábærar veitingar og góður félagsskapur. Gríðarleg stemmning var á fyrstu grillveislunni sem fór fram 29. júní og komust mun færri að en vildu. Önnur grillveisla Reykjavík FM 105,5, Kjarnafæðis og Carlsberg mun fara fram 27. júlí á Dillon. Góð tónlist, frábærar veitingar og góður félagsskapur. Gríðarleg stemmning var á fyrstu grillveislunni sem fór fram 29. júní og komust mun færri að en vildu.

Það voru um 130 heppnir hlustendur Reykjavík FM sem fylltu garðinn og gæddu sér á helstu nýjungunum frá grillmeisturum Kjarnafæðis og sturtuði í sig gosi og Carlsberg með.

Ef þú vilt komast á gestalistann verður þú að vera eldri en 20 vetra og vera myspace-vinur Reykjavík FM 105,5 og commenta „grill á dill“.

Á fimmtudaginn förum við yfir listann og þau sem komast fá að sjálfsögðu svar tilbaka.

Svo er um að gera að hlusta á Reykjavík FM 105,5 því að dagskrárgerðarmenn munu setja vel valin nöfn á gestalistann alla vikuna.