Einar íslandsmeistari í pylsuáti

Einar Haraldsson var í dag krýndur Íslandsmeistari í pylsuáti á hátíðinni Ein með öllu á Akureyri. Einar hesthúsaði tíu pylsum innan tilsettra tímamarka sem voru tíu mínútur. Það var Kjarnafæði, Vífilfell og Voice FM987 sem stóðu að keppninni. Einar Haraldsson var í dag krýndur Íslandsmeistari í pylsuáti á hátíðinni Ein með öllu á Akureyri. Einar hesthúsaði tíu pylsum innan tilsettra tímamarka sem voru tíu mínútur. Það var Kjarnafæði, Vífilfell og Voice FM987 sem stóðu að keppninni.

Þátttakendur þurftu að sanna hæfni sína með því að sporðrenna fjórum pylsum í brauði á sem skemmstum tíma í undankeppni sem fór fram á útvarpsstöðinni Voice FM987. Fjórir fljótustu keppendur tóku síðan þátt í lokaúrslitum þurftu þeir að sporðrenna eins mörgum pylsum og mögulegt var á 10 mínútum. Einar sýndi þar og sannaði að það stendur honum enginn framar á Íslandi í pylsuáti og kom hann niður 10 pylsum áður en yfirlauk.

Einar vakti athygli fyrir sérstaka tækni við átið. Hann mætti með eigin kókkönnu og dýfði pylsunum í gosið áður en hann lagði til atlögu við þær, ásamt því að beita þeirri tækni að standa á meðan keppninni stóð. Þetta reyndist honum vel og hann fór heim með sigurlaunin, veglegan bikar og gjafakörfu frá Kjarnafæði.

Í kjölfar sigursins verður hann aldrei kallaður annað en Einar með öllu.