Meistarakokkurinn Sverrir Þór lét okkur í té þessa frábæru uppskrift af hamborgarhrygg. Hryggurinn er sinneps- og kornflöguhjúpaður og borinn fram með eplasalati og sinnepssósu.
Meistarakokkurinn Sverrir Þór lét okkur í té þessa frábæru uppskrift af hamborgarhrygg. Hryggurinn er sinneps- og kornflöguhjúpaður og borinn fram með eplasalati og sinnepssósu.
Hryggurinn
| 1,2 kg | Hamborgarahryggur með beini | 
| 6 msk | brauðraspur | 
| 8 msk | kornflögur (corn flakes) muldar frekar fínt | 
| 4 msk | sætt sinnep | 
Sinnepssósa
| ½ lítri | svínasoð | 
| Smjörbolla | |
| Sætt sinnep | |
| Sósulitur | |
| 1 peli | rjómi | 
Eplasalat
| 2 stk | græn epli kjarnahreinsuð og skorinn í bita | 
| ½ bolli | skyr hrært | 
| ½ bolli | sýrður rjómi | 
| 1 msk | strásykur | 
Byrjið á að taka hrygginn úr pakkningum og setja í bakka með köldu vatni og látið fljóta vel yfir og hafið hann þar í 4 klukkutíma. Og af hverju geri ég þetta, jú af því ég ætla að steikja kjötið en ekki sjóða.
Á meðan við erum að bíða er gott að laga eplasalatið en þar er sýrða rjómanum, skyrinu og sykrinum blandað saman og síðast er eplabitunum bætt út í og sett í kæli.
Snúum okkur þá aftur að kjötinu, hryggurinn tekinn upp úr og þerraður vel, settur í ofnskúffu með kjarnhitamælir stillt á 50°C og inn í ofn sem hefur verið forhitaður í 160°C.
Þegar mælirinn pípir takið þá hrygginn út setjið á bretti og takið hann af beininu leggið aftur í ofnskúffuna þerrið vel yfirborðið og penslið með sæta sinnepinu og stráið svo yfir blöndu af raspinum og kornflögunum.
Hryggurinn er síðan settur inn í ofn hækkið hitann í 180c og bakið þar til kjarnhitamælirinn segir 68°C. Takið hrygginn út og setjið til hliðar í u.þ.b. 10 mínútur áður en hann er skorinn.
Sósan: Hellið soðinu í ofnskúffuna og leysið upp úr botni hennar hellið í pott og látið suðuna koma upp.
Þykkið með smjörbollunni og bragðið til með sætu sinnepi salt og pipar eftir smekk.
Bætið smá rjóma út í og ef vill smá sósulit í lokin.
Framborið með eplasalatinu,sykurbrúnuðum kartöflum og heimalöguðu rauðkáli.
Sverrir