Landslið kjötiðnaðarmanna á leið á sitt fyrsta stórmót

Stefán Einar Jónsson (fyrir miðju) og Róbert Ragnar Skarphéðinsson (lengst til hægri)
Stefán Einar Jónsson (fyrir miðju) og Róbert Ragnar Skarphéðinsson (lengst til hægri)

Landslið kjötiðnaðarmanna heldur á sitt fyrsta stórmót sem verður haldið í Sacramento í Californiu í Bandaríkjunum. Við hjá Kjarnafæði-Norðlenska erum gríðarlega stolt af því að eiga tvo landsliðsmenn en það eru þeir Stefán Einar Jónsson og Róbert Ragnar Skarphéðinsson. 13 þjóðir keppa og er Ísland eina Norðulandaþjóðin sem tekur þátt. Keppnin heitir World Butcher Challenge og fer fram laugardaginn 3.september kl. 18:00 - 21:15 á íslenskum tíma. Hægt verður að fylgjast með í beinni hér: https://bit.ly/WBC2022Livestream