Kjúklingalæri í stökkum raspi

kjúklingalæri í stökkum raspi
kjúklingalæri í stökkum raspi

Hitið ofninn í 200°C. Myljið kornflex smátt og veltið upp úr eggi sem búið er að blanda saman við krydd. Þerrið kjúklingaleggina og kryddið þá með salti og pipar.

Innihald:

  • 8-10 kjúklingaleggir eða heill kjúklingur
  • 5 dl kornflex
  • 2 egg
  • eftir smekk salt og pipar
  • 2msk hvítlaukur

Aðferð:
 

Hitið ofninn í 200°C. Myljið kornflex smátt og veltið upp úr eggi sem búið er að
blanda saman við krydd. Þerrið kjúklingaleggina og kryddið þá með salti og pipar.
Blandið saman olíunni og hvítlauknum og veltið leggjunum upp úr blöndunni og
eggjunum. Veltið þeim síðan upp úr muldu kornflex flögunum og þrýstið þeim vel að
leggjunum.

Raðið þeim í eldfast fat og dreifið afganginum af flögunum yfir.
Setjið í ofninn og bakið í 35 mínútur eða þar til leggirnir eru
gegnsteiktir.

Gott er að bera leggina fram með maís flögum.

Mexíkó meðlæti:
Tómat salsa, sýrður rjómi og avacato (lárperu) ásamt góðu salati.


Verði ykkur að góðu!
 
Frekari upplýsingar: