Fyrir kjötætur og flatbökuunnendur er þessi hugmynd að kjötríkri flatböku alveg skotheld!
Það sem þarf í þessa elsku er eftirfarandi:
Álegg:
1 bréf Kjarnafæði Pepperoni
1 pakki Kjarnafæði pizzuskinka
1 pakki Kjarnafæði baconkurl
1 stk 620 gr. nautgripahakk frá Kjarnafæði
1 stk rifinn ostur (eða til að spara safna saman afgöngum af oststykkjum, frysta og rífa svo niður frosinn)
Pizzudeig:
| 250 g | hveiti | 
| 1 tsk | þurrger | 
| 150 ml | volgt vatn | 
| 1/2 tsk | (hrá)sykur | 
| 1 tsk | salt | 
| 2 tsk | ólífuolía | 
 
 Aðferð:
- 
Blandið hveiti og þurrgeri í stóra skál. 
- 
Bætið vatninu, sykri, salti og olíu smátt og smátt saman við hveitiblönduna og hnoðið deigið vel. Hvolfið deiginu á borðplötu og hnoðið þar til það er slétt og sprungulaust í 5-7 mínútur. 
- 
Setjið deigið í hveitistráða skál og plastfilmu eða blautan klút yfir. Látið deigið hefast í 45 mín - 1 klst. áður en það er flatt út. 
Pizzusósa:
| 1 dós | niðursoðnir tómatar | 
| 2 geirar | hvítlaukur | 
| 1 tsk | oregano | 
| ½ tsk | basil | 
| 1 stk | grænmetiskraftur | 
| 1 tsk | sykur | 
 
*salta og pipra eftir þörfum
Aðferð:
- 
Allt sett í pott og látið malla í nokkrar mín (án loks) þar til sósan þykknar. 
- Bragðbætt með salti og pipar og kælt.
 
 Aðferð við að setja á pizzuna, frekar mikilvægt:
 
 
- Steikið hakkið sér (gott að brjóta það ekki of mikið í sundur og muna bara að steikja þá frekar vel, þá fást stórir og matarmiklir bitar)
- Baconkurlið steikt en samt ekki með hakkinu. Munið að þerra það með pappír áður en haldið er áfram í næstu skref
- Pizzudeigið flatt út og sósan smurð á.
- Skinkan sett fyrst
- Baconkurlið því næst stráð yfir.
- Osturinn rifinn og honum stráð yfir.
- Nautahakkinu svo dreift yfir ostinn 
- Að síðustu setjum við svo alvöru Kjarnafæði pepperoni yfir, því meira því betra!
- Pizzan bakast í 200°C heitum ofni í ca 10 mín á blæstri eða þangað til hún er orðinn falleg á litinn.
- Athugið að sjálfsögðu má bæta við hinum ýmsu kryddum eftir smekk, t.d. oregano og eða smá chilli duft mun engan svíkja.
 
Frekari upplýsingar:
Verði ykkur að góðu!