Kjarnafæði Norðlenska, í samráði við Krónuna og Matvælastofnun, innkallar Krónu pylsur 10 stk með síðasta notkunardag 27.08.2026.
Ástæða innköllunar
Vegna prentvillu á hluta framleiðslulotunnar birtist innihaldslýsing ekki á umbúðum vörunnar. Þar af leiðandi er sojaprótein, sem er ofnæmis- og óþolsvaldur, ekki tilgreint á umbúðunum. Varan inniheldur sojaprótein sem getur valdið ofnæmisviðbrögðum hjá einstaklingum með ofnæmi eða óþol fyrir soja.
Upplýsingar um vöruna
• Vöruheiti: Krónu pylsur 10 stk
• Framleiðandi: Kjarnafæði Norðlenska
• Lotunúmer: 758-26210-2
• Síðasti notkunardagur: 27.08.2026
• Dreifing: Verslanir Krónunnar
Mikilvægar upplýsingar til neytenda
Neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja eru beðnir um að neyta vörunnar ekki. Þeir geta annað hvort fargað vörunni eða skilað henni í næstu verslun Krónunnar og fengið fulla endurgreiðslu.
Kjarnafæði Norðlenska biðst innilegrar velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þakkar viðskiptavinum fyrir skilninginn.
Mynd af réttri innihaldslýsingu og mynd af vanmerktri vöru fylgja hér að neðan.
