Frá Lundarskóla
					 
				MATVÍS stendur fyrir opnu málþingi fagmanna og framleiðanda um þá gagnrýni sem hefur komið fram á mat í mötuneytum skólanna 6. apríl kl. 15:00 að Stórhöfða 31.  Þar eru ásakanir um að fóður sé borið á borð en ekki fæða. 

Til þess að fara yfir þessi mál hefur MATVÍS boðið eftirtöldum aðilum að gera grein fyrir sínum sjónarmiðum með framsögu og sitja síðan í pallborði. 
Dagskrá:
Setning: Níels S. Olgeirsson formaður MATVÍS. Framsögur. 
	- Grímur Þór Gíslason hjá Grímur kokkur. 
	Innihald og næringargildi þeirra vöru sem hann selur til mötuneyta og annarra.  
	- Eðvald S Valgarðsson frá Kjarnafæði. 
	Stefna Kjarnafæðis hvað varðar söltun, reykingu og aukefni í þeirra afurðum.  
	- Ólafur Reykdal frá Matís. 
	Yfirlit um niðurstöður rannsókna á næringargildi brauð- og kjötvara.  
	- Hólmfríður Þorgeirsdóttir  hjá Lýðheilsustöð.
	Ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um matarframboð í skólum byggt á  handbók fyrir skólamötuneyti. 
	- J. Trausti Magnússon matreiðslumeistari í grunnskóla.
	Fer yfir hvernig hann velur sína birgja og á hvað hann leggur áherslu á við innkaup á matvöru.  
	- Pallborðsumræður. 
 
Fundarstjóri  Ólafur Jónsson hjá Iðunni fræðslusetri