Sögur

Hláturbær

Það var alltaf allt svo friðsælt og fyndið í Hláturbæ. Allir skellihlóu alla daga en einn daginn hættu allir að hlæja. Af hverju hættu allir að hlæja? Jú, það var af því að maturinn í Hláturbæ var búinn. Það var nefnilega einhver búinn að stela öllum mat úr bænum og enginn hafði neitt að borða. Löggan vissi ekki hvað var að gerast og hverjir bófarnir væru. Löggan þurfti hjálp frá einkaspæjurum. Jú, þá kom aðeins einn hópur til greina KJARNAKRAKKAR.

Þau fóru strax að rannsaka málið. Ormur sá einhverjar skrítnar mannaferðir bakvið stóra tréð fyrir utan Hláturbæ. Ormur fékk hundinn Þef til að þefa upp bófana og viti menn. Þetta voru tveir feitir og stórir bófar sem voru að stela mat úr Hláturbæ. Þeir voru búnir að fylla stóran vörubíl af mat. Þefur gelti svo hátt að Grettir og Snjöll komu svífandi til hjálpar. Þefur hljóp af stað og beit á dekkin á vörubílnum og sprengdi dekkin, þannig að bófarnir komust hvergi. Grettir og Snjöll límdu hurðirnar á vörubílnum fastar með ofurlími þannig að bófarnir sátu fastir inn í vörubílnum. Ormur hringdi í lögguna og löggan kom og handtók bófana.

KJARNAKRAKKAR skiluðu matnum aftur í Hláturbæ. Á ný hlógu allir aftur Hláturbæ og ennþá má heyra hlátur þaðan. HA HA HA HÍ HÍ

Blíðubær

Í Blíðubæ var alltaf sól og gott veður. Fólk lá í sólbaði, lék sér á ströndinni, krakkar í fótbolta og pabbar að grilla yndælis Kjarnafæði pylsur. Það var einn góðan veðurdag í Blíðubæ að það hætti að koma sól. Hvað gerðist eiginlega? Öll uppskera, allar plöntur og allt gras fölnaði hratt og allt varð grátt. Nú var ekkert grænmeti til eða krakkar að spila fótbolta á grasi.Bæjarstjóri Blíðubæjar ákvað að tala við ráðagóða gengið KJARNAKRAKKA til að fá aðstoð.

Kjarnakrakkar komu fljótt til Blíðubæjar, Snjöll, Grettir, Ormur og Þefur. Þetta fannst þeim undarlegt, það var eins og það væri sólmyrkvi. Snjöll var fljót að koma með þá hugmynd að fara upp á Blíðuhæð og skoða sólmyrkvann í störnukíki Blíðubæjar. Í kíkinum sáu þau dálítið skrítið. Þau sáu risatjald og risa geimfar sem var að hindra að sólin skíni á Blíðubæ. Ormur stökk á bakið á Þef, þeir flugu af stað og Grettir henti til þeirra laserhníf. Þefur flaug rosalega hratt því eyrun hans eru eins og vængir á flugvél. Þeir flugu fram hjá tjaldinu og skáru tjaldið í sundur með laserhnífnum. Geimfarið flaug strax í burtu.

Þefur og Ormur lentu í Blíðubæ og viti menn, uppskeran dafnaði, ásamt grasinu og á meðan grasið óx fóru krakkar í sund og pabbarnir héldu áfram að grilla pylsur fyrir fjölskyldur sínar. Bæjarstjóri Blíðubæjar hélt áfram að vera í blíðu skapi og þakkaði Kjarnkrökkum kærlega fyrir hjálpina.

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning