Þefur er eins og nafnið gefur til kynna með ótrúlegt lyktarskyn. Hann getur fundið lykt af bófum úr óralangri fjarlægð. Áður en Þefur fór að vinna með Kjarnakrökkum sem einkaspæjari þá var hann notaður sem snjóflóðahundur. Þefur hefur þann eiginleika að fljúga á eyrunum og getur hann flogið hraðar en herþota.


