Ormur er ótrúlega klár og alltaf með alla hluti á hreinu. Hann geymir allskonar hluti í bleyjunni sinni sem koma sér vel þegar þarf að leysa ýmis vandamál eins og t.d. þegar hann notaði ofurlímið til að festa bófanna inni í vörubílnum í sögunni Hláturbæ. Ormur er dálítill ormur í sér, á það stundum til að gantast í félögum sínum.


