Saga Kjarnafæðis

Kjarnafæði var stofnað þann 19. mars 1985 af bræðrunum Eiði og Hreini Gunnlaugssonum. Í upphafi fór starfsemi fyrirtækisins fram í litlu húsnæði, þar sem þeir bræður unnu ásamt fjölskyldum sínum.
Fyrstu árin var aðaláherslan lögð á að framleiða pizzur og hrásalat.

olafur_r_olafsson_120

Ört vaxandi starfsemi fyrirtækisins kallaði á stærra húsnæði og í október 1987 flutti fyrirtækið í núverandi húsnæði að Fjölnisgötu 1. Árið 1993 festi Kjarnafæði kaup á húsnæði á Svalbarðseyri og eftir gagngerðar endurbætur og uppbyggingu flutti fyrirtækið stóran hluta af starfsemi sinni þangað.

Árið 2002 stofnaði Kjarnafæði í samvinnu við HB Granda og Brim fiskvinnslufyrirtækið Norðanfisk. Norðanfiskur hóf starfsemi sína á Akureyri en flutti 2003 upp á Akranes, þar sem fyrirtækið starfar nú. Norðanfiskur býður upp á breiða línu af frosnum fiski, fiskafurðum og svo reyktum og gröfnum laxi.

Árið 2004 stofnaði Kjarnafæði ásamt samlokugerðinn Júmbó, salat- og sósugerðina Nonna litla. Nonni litli er staðsett í Mosfellsbæ og er nú alfarið í eigu eignarhaldsfélags Kjarnafæðis. Nonni litli framleiðir matar- og brauðsalöt, kaldar sósur og forsteiktar kjöt- og fiskibollur.

2004 eignaðist Kjarnafæði líka hlut í Sláturfélagi Vopnfirðinga. Sláturfélag Vopnfirðinga hefur löngum verið einn af birgjum Kjarnafæðis. Sláturfélagið er vel tækjum búið og hefur útflutningsleyfi.

Árið 2005 eignaðist Kjarnafæði liðlega þriðjungs hlut í nýju félagi sem stofnað var um rekstur sláturhúss og kjötvinnslu Sölufélags Austur Húnvetninga á Blönduósi. Sölufélag Austur Húnvetninga er eitt af elstu starfandi fyrirtækjum landsins á sínu sviði, stofnað árið 1908.

_mg_6895_120

Um þessar mundir er Kjarnafæði eitt stærsta og öflugasta kjötvinnslufyrirtæki landsins og í stöðugri aukningu. Samanlögð velta Kjarnafæðis og dótturfélaganna var um 4.000 millj. króna. árið 2007.

Fyrirtækið leggur mikla áherslu á vöruvöndun og gæði framleiðslunar og að veita skjóta og góða þjónustu. Fyrirtækið hefur á að skipa mjög hæfu starfsfólki og góðum tækjakosti. Nú starfa um 130 manns hjá Kjarnafæði og hafa margir þeirra starfað allt frá fyrstu árum fyrirtækisins.

Kjarnafæði framleiðir flestar þær afurðir úr íslensku gæðakjöti, sem í boði eru á íslenskum neytendamarkaði. Afurðir úr reyktu og söltuðu kjöti má telja sem sérgrein fyrirtækisins en auk þess framleiðir fyrirtækið fjölda kjötvara, bæði lítið unnið og meira unnar s.s. pylsur, álegg og búðinga af ýmsu tagi. Kjötiðnaðarmeistarar fyrirtækisins hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir færni sína.

picture_070_120

Kjarnafæði selur framleiðslu sína um land allt og hefur náð mjög góðri fótfestu á markaðinum. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru fjölmargir og má þar helst nefna stórmarkaðina, kaupfélög, aðrar verslanir, nokkur bestu veitingahús og veisluþjónustur landsins, sem og stór og smá mötuneyti.

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning