Ýsa með eplacider

Skemmtileg útfærsla á ýsu sem auðvelt að búa til daginn áður og skella svo í ofninn þegar matartíminn nálgast.
Fyrir 4
| 1 kg | Ýsa eða þorskur |
|
1 msk |
Steinselja, söxuð |
| 200 g | Sveppir, sneiddir |
| 200 g | Tómatar, saxaðir |
| 2 tsk | Hveiti |
| 100 g | Smjör |
| 450 ml | Eplacider |
| 1 búnt | Dill |
| 2 msk | Calvados (má sleppa) |
| Salt og pipar |
- Skerið fiskinn í passlega stóra bita og blandið honum saman við sveppina, tómatana og steinseljuna, kryddið með salt og pipar og setjið í eldfast mót.
- Bræðið smjörið og blandið hveitinu saman við og hrærið vel yfir hita eða þangað til þið finnið vægan möndluilm.
- Blandið cidernum saman við ásamt Calvados og sjóðið við vægan hita þar til blandan er kekklaus og farin að þykkna.
- Hellið ciderblöndunni yfir fiskinn og grænmetið, blandið létt saman.
- Setjið álfilmu yfir mótið og bakið í ofni í hálfa klst við 180°C.
- Takið álfilmuna af, skreytið með dillinu g berið fram með hrísgrjónum og nýbökuðu brauði.


