Einiberjakryddað lambalæri

Einiberjakryddað lambalæri
Einiberjakryddaða lambalærið er einstaklega auðvelt að elda. Hérna er ein einföld og skemmtileg uppskrift af lærinu með einiberjasósu.
1 stk Einiberjakryddað lambalæri frá Kjarnafæði
Einiberjakryddaða lambalærið skal steikja í uþb. 40-45 mín fyrir hvert kg. Einnig er gott að grilla lærið og hafa þá sömu þumalputtareglu.
Einiberjasósa:
6 dl. kjötsoð (soð úr skúffunni, vatn og kjötkraftur)
5-6 einiber
1 tsk steinselja
2 dl rjómi
1 msk hunang
Salt og pipar
Setjið kjötsoð, einiber og steinselju saman í pott og sjóðið í 7-8 mín. Bætið í rjóma og hunangi og bragðbætið með salt og pipar. Þykkið sósuna með sósujafnara eftir þörf.
Gott er að bera þetta fram með smjörsteiktum kartöflum og léttsoðnu grænmeti.


