Þýsk pylsusúpa

Guðrún Jóhannsdóttir sendi þessa ljúffengu uppskrift inn.
Fyrir 4-6
2-3 stk Hráar kartöflur, afhýddar og skornar í teninga 1 stk Stór laukur, afhýddur og skorinn í sneiðar (eða bita) 3 stk Sellerileggir, smátt skornir 1 dós Saxaðir tómatar (440 g) 9 dl Kjötsoð (heimatilbúið eða úr teningum) 1/2 tsk Caraway fræ 1 dós Rauðar nýrnabaunir (250 g) safinn látinn renna af 125 g Hvítkál, mjög smátt skorið eða gróft rifið á rifjárni 250 g Pylsur, sneiddar í bita, helst 2-3 teg.
Salt og pipar
Kartöflur, laukur, sellerí, tómatar, kjötsoð og Caraway fræ eru sett í pott. Látið sjóða og malla í svona 20 mínútur. Þá eru baunirnar og kálið sett útí og látið malla í aðrar 20 mínútur eða þar til allt er hæfilega soðið.
Þá er pylsubitunum og salti og pipar bætt útí og hitað í gegn.
Gott að hafa nýbakað brauð með.
Verði ykkur að góðu!


