Sykurbrúnaðar kartöflur

Sígilt meðlæti með hátíðarmat, þá sérstaklega reyktu kjöti. Við mælum með því að nota hrásykur fremur en hefðbundinn strásykur, hrásykurinn gefur mun betra bragð - og svo má gera lúxusútgáfu með því að nota rjóma í staðinn fyrir vatn, þá fá kartöflurnar dásamlegan karmellukeim.
| 1 kg | Soðnar kartöflur, flysjaðar |
| 1 dl | Sykur |
| 50 g | Smjör |
| 2 msk | Vatn |
-
Brúnið sykurinn á pönnu (fylgist vel með svo sykurinn brenni ekki)
- Bætið smjörinu og blandið með sleif.
- Bætið vatninu út í og hrærið uns allt hefur sameinast.
- Bætið kartöflunum í og látið kraum við vægan hita þar til kartöflurnar eru vel hjúpaðar.


