Sveppasúpa Winston
Rjómalöguð sveppasúpa með lauk. Hún svíkur ekki þessi.
2 stk Laukar, saxaðir 250 g Sveppir, saxaðir 50 g Smjör 2 msk Hveiti 1 l Kjúklingasoð (vatn + ten.) 1 dl Rjómi 1/4 tsk Múskat
Salt og pipar
- Steikið grænmetið í smjörinu á lágum hita í 10-15 mín.
- Stráið hveitinu yfir og hrærið vel í.
- Bætið kjötseyðinu við og sjóðið súpuna á lágum hita í uþb. 20 mín.
- Bætið að lokum rjóma og múskati út í. Bragðið súpuna til með salti og pipar.
- Berið fram með góðu brauði.
Verði ykkur að góðu!


