Nýtt - Pepperonibúðingur

Allir þekkja hið fræga Kjarnafæði pepperoni,
enda margverðlaunað og einstakt pepperoni. Nú hefur Kjarnafæði líka sett á
markað kjötbúðing með pepperonibitum í. Pepperonibúðingurinn frá Kjarnafæði er
þrusugóður enda ekkert til sparað því Pepperonibúðingurinn inniheldur 25%
Kjarnafæði pepperoni og því bragðmikill og ljúffengur í senn.
Pepperonibúðinginn er einfalt og fljótlegt að elda, bara að skera hann í sneiðar og steikja á pönnu. Auðvitað má líka láta hugarflugið ráða og nota pepperonibúðinginn sneiddan í biximat, í pastarétti og alls konar pönnu- og pottrétti.
Pepperonibúðingurinn er að sjálfsögðu án MSG, án eggja og þar að auki er hann líka laktosfrír (án mjólkur).
Innihaldslýsing, smellið hér.


