Matreiðslumaður ársins 2008

T.v. Hallgrímur, Jóhannes og Viktor
Jóhannes Steinn Jóhannesson varð í gær matreiðslumaður ársins. Úrslitakeppnin fór fram í Hótel og Veitingaskólanum í Kópavogi í gær, keppendur byrjuðu klukkan 08;00 og fyrstu skiluðu klukkan 13;00 og svo á 10 mín. fresti.
Fyrirkomulag í keppninni var Leyndarkarfa (Mistery Basket). Keppnin var geysihörð og lítill munur á mönnum, en það er oft dagsformið sem gerir útslagið. En úrslitin urðu þessi:
Matreiðslumaður ársins er Jóhannes Steinn Jóhannesson Silfur
2. sæti Viktor Örn Andrésson Domo
3. sæti Hallgrímur Friðrik Sigurðsson Friðrik V
Smellið hér til að skoða myndir frá keppninni ásamt verðlaunaafhendingunni.
Dómarar í blindsmakki:
- Alfreð Ó. Alfreðsson, Kaupþing
- Brynjar Eymundsson, Glitnir
- Gissur Guðmundsson, Forseti WACS ( World Association Chefs Sociaty)
- Jakob H. Magnússon, Hornið yfirdómari
- Sverrir Halldórsson, Freisting.is
Eldhúsdómarar:
- Bjarki Hilmarsson, Hótel Geysir
- Stefán Viðarsson, Hilton Nordica
Mynd; Matthías | Texti; Sverrir


