Lambalærissneiðar með sítrónu og mintu

Íslendingar eru farnir að grilla ársins hring, ólíkt því sem áður var. Hér er einföld og þægileg grískættuð uppskrift. Góðar steiktar en enn betri grillaðar.
| 4 stk | Lambalærissneiðar |
| 1 stk | Hvítlauksrif (saxað) |
| 1 búnt | Vorlaukur (saxaður) |
| 1 tsk | Mintulauf (söxuð) |
| 1 stk | Sítróna, safi og börkur |
| 4 msk | Jómfrúarólífuolía |
|
Salt og svartur pipar |
- Blandið saman hvítlauk, vorlauk, mintu, sítrónusafa, rifnum sítrónuberki og ólífuolíu.
- Skerið í fitulagið á lærissneiðunum með jöfnu millibili (til þess að það verpist ekki þegar grillað/steikt er) og raðið þeim á djúpan bakka, þannig að vel fari um hverja sneið.
- Hellið kryddlögnum yfir kjötið, hyljið bakkann með plastfilmu og geymið í kæliskáp yfir nótt.
- Grillið sneiðarnar á útigrillinu eða steikið á pönnu og kryddið til með salti og pipar.
- Gott að bera lærissneiðarnar fram með hvítlaukssósu, bökuðum kartöflum og góðu grænmeti.
Auðvitað má nota annað lambakjöt en lærissneiðar, ss. kótelettur eða framhryggjasneiðar.


