Kjötbollur í karrí

Ein sígild sem er alveg tilvalin á köldu vetrarkveldi. Auðvelt er að gera bollurnar fyrirfram, geyma í frysti og taka fram þegar á þarf að halda.
| 500 g | Svínahakk (eða annað gott hakk, s.s. sparhakk) |
| 1 stk | Laukur, rifinn eða fínsaxaður |
| 3 msk | Hveiti |
| 2,5 dl | Mjólk |
| 1 stk | Egg |
| 2 tsk | Salt |
| Pipar |
Sósa:
| 1 stk | Laukur, fínsaxaður |
| 20 g | Smjör |
| 1 msk | Karrí |
| 2 msk | Hveiti |
| 4 dl | Kjötbolluvatn (síað) |
| 1 dl | Rjómi |
| 1 stk | Epli, helst súrt |
| Salt og pipar |
- Blandið hakki og öðrum hráefnum saman í skál og hrærið gott kjörfars. Látið farsið hvíla í hálftíma.
- Mótið litlar kjötbollur með teskeið og setjið í sjóðandi vatn. Látið bollurnar sjóða í 6-7 mín.
- Takið bollurnar upp með fiskispaða og látið renna vel af þeim.
- Sósa: Steikið laukinn í smjörinu og blandið karrí saman við.
- Stráið hveiti yfir og bakið sósuna upp með síuðu kjötbolluvatni, hrærið stöðugt.
- Hrærið rjómanum saman við og látið sósuna malla í smástund.
- Rífið eplið gróft og bætið í sósuna.
- Smakkið sósuna til með salti og pipar.
- Hellið bollunum út í og hitið í gegn.
- Berið bollurnar fram með td. hrísgrjónum og/eða kartöflum og góðu rúgbrauði.


